Nemli ja!
Það er bara komið haust! Það fór víst lítið fyrir sumri hér í landi Baunanna, en ég náði í restina af blíðunni á Íslandi í ágúst. Íslandsferðin gekk vel, börnin lærðu einhverja dönsku, Maria ferðaðist um Ísland og ég borðaði nammi!
Þessa dagana nýt ég þess að vera í haustfríi frá skólanum. Ég get þó ekki sagt að ég hafi verið í miklu fríi, grúbbuvinna og verkefnaskil í upphafi vikunnar segja það sem segja þarf. Á morgun er svo á dagskránni að mála stofuna og eldhúsið, svona til að komast algjörlega hjá því að slappa af í lok frísins:)
Í sjö vikur í janúar og febrúar verð ég við æfingakennslu í grunnskóla einum á Frederiksberg. Það er alltaf gaman að losna frá bókunum í einhverjar vikur á vetri hverjum og gera sitt besta í að sýna hvað maður nú hefur lært í náminu. Að þessu sinni er áherslan lögð á c-fagið mitt, sumsé íþróttir (og sund). Þess vegna er ég með samtals 10 kennslustundir í þessum fögum, af 17. Hinir tímarnir mínir eru svo landafræði og tónlist. Ég hlakka mikið til, og ekki eyðileggur að skólinn er í minna en 10 mínútna hjólafjarlægð, eitthvað annað en fyrir síðustu jól þegar ég var í Taastrup og þurfti að hjóla héðan heiman frá klukkan fimm mínútur í sjö á morgnanna til að taka S-tog, og kom aldrei heim fyrren seint og síðar meir á daginn. Núna er ég með fína stundatöflu, og get þess vegna farið heim ef ég er í löngum götum!!! Anyway, þetta leggst vel í mig og Stefan sem verður með mér er líka öndvegispiltur, rólegur og ekkert vesen.
Nú er best að hætta þessu rausi ... ég ætla ekki seint að sofa!
... og lidt på dansk:)
Der er allerede efterår her i København! Der er begyndt at blæse og jeg har fundet halstørklædet og handskerne frem. Livet på seminariet går godt, travlt, men godt.
Islandsturen gik godt. Vi var heldige med vejret, solen skinnede og det blæste ikke mens vi var på vores campingtur rundt i landet.
Jeg tror ikke jeg vil skrive meget mere ... så indtil næste gang ... chao!
2 Comments:
Hæjjjj kella.....
Nú hafa þeir hvítu og svörtu farið yfir á grátt svæði........ Blogg-antistinn..... farinn að blogga!!!??
Var það Íslandsferðin og flíspeysurnar.......eða????allavega.....dugleg stelpa ;D
hehehe ... jamm sennilega er þetta allt saman flíspeysunum að kenna (best að segja ekki frá því að ég er í einni slíkri í þessum skrifuðu orðum)!
Skrifa ummæli
<< Home